Borgarahreyfingin og ESB
12.7.2009 | 22:30
Mikið hefur verið talað og skrifað um ræðu Birgittu Jónsdóttir um ESB og misskilning hennar hvað varðar aðildarumsókn Íslands að ESB.
Það er satt hjá Birgittu að ekkert er skráð um ESB í stefnuskrá hreyfingarinnar en hitt er annað mál að ekki var mögulegt að fara í kosningarbaráttu og sniðganga málið. Kvöldið fyrir 1. blaðamannafund okkar í Iðnó þar sem hreyfingin var kynnt var opinber stefna hreyfingarinnar mikið rædd og fékk ég viðstadda til þess að samþykkja þá stefnu sem síðan varð okkar í kosningarbaráttunni : Það er ekki fræðilegur möguleiki að kjósa um það sem við vitum ekki nóg um.
Þessi stefna var stefna hreyfingarinnar í kosningarbaráttunni og Gunnar Sig., ég sjálf og Guðmundur Andri ásamt öðrum sem voru á listanum okkar í NV. kjördæminu sögðum það á öllum fundum þar sem við vorum spurð um ESB. Ég veit ekki betur en það sama megi segja um alla þá sem voru á listum okkar að Birgittu meðtaldri.
Það er kominn tími til að treysta Íslendingum til þess að velja sjálfir, eftir að upplýsingar um kosti og galla aðildar liggja fyrir. Ég treysti ekki hagsmunasamtökum til þess að segja satt um það sem stendur okkur til boða, hvorki þeim sem eru á móti eða með aðild, en ég treysti landsmönnum til þess að geta valið um það sem þeir telja best fyrir sig og sína þegar kemur að því að samþykkja eða hafna aðild eftir að samningur liggur fyrir allra augum, opinber, með galla og kosti.
Að Birgitta tali um að fylgja samvisku sinni vegna þess að hún hafi verið kosin inn á Alþingi til þess er hennar mál en hún var kosin til þess að gera það sem er þjóðinni fyrir bestu og nota til þess þau tól og tæki lýðræðis sem fyrirfinnast hér á landi og treysta löndum sínum til að ákveða samkvæmt þeirra eigin samvisku hvað þeir vilja.
Það stendur ekki íslensku ríkisstjórninni til boða að ganga í ESB án þess að þjóðin fái að ákveða það sjálf.
![]() |
Hjáseta kann að ráða úrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Athugasemdir
Ég er alfarið á móti inngöngu í ESB, afhverju ekki tvennar kosningar? Kjósa um það hvort aðildarviðræður fari fram eða ekki? Það gæti sparað þjóðfélaginu stórar upphæðir, ekki veitir af að nota hagsýnina líka.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.7.2009 kl. 00:48
Kæra Jóna, ég held að það sé kominn tími til þess að við fáum að vita hvað stendur okkur til boða og hvað við getum boðið upp á.
Ég hef lengi furðað mig á því hvers vegna ráðamenn okkar hafa ekki treyst þjóðinni til þess að taka upplýsta ákvörðun.
Davíð sagði : "þetta er ekki til umræðu", og þá var það ekki rætt.
Davíð sagði : "Brussel er eitt ólýðræðislegasta bákn (í heimi)", og allir trúðu því.
Í miðri kosningarbaráttunni kom auglýsing með mynd af Bjarna Ben og því var haldið fram að með hjálp AGS myndum við geta tekið upp Evru. Ert þú tilbúin til þess að fá þínar upplýsingar frá fólki sem a) veit ekki betur b) lýgur ?
Ég kýs að fá að fylgjast með samningarviðræðum og taka síðan upplýsta ákvörðun.
Lilja Skaftadóttir, 13.7.2009 kl. 01:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.